Rannsóknarráð Íslands
Rannsóknasjóðir
Sáttmálasjóður
Styrktarsjóður BHM
1. gr.
Ritlauna- og rannsóknasjóður prófessora starfar samkvæmt úrskurði kjaranefndar dags. 11. desember 2001 um launakjör prófessora. Úr sjóðnum renna allar greiðslur frá ríkissjóði samkvæmt ákv. 4. tl. VIII. kafla úrskurðarins.
2. gr.
Kjaranefnd nýtur aðstoðar ráðgjafa við undirbúning úthlutunar úr sjóðnum. Skal jafnan leitað til ráðgjafa frá Félagi prófessora í Háskóla Íslands og Félagi prófessora á Íslandi. jafnframt getur kjaranefnd leitað ráðgjafar utan háskólanna.
3. gr.
Prófessorar geta árlega sótt um greiðslur úr sjóðnum fyrir árangur í rannsóknum á liðnu almanaksári. Skulu þeir þá skila skýrslum um prófessorsstörf sín á því ári eigi síðar en 1. febrúar ár hvert.
4. gr.
Kjaranefnd metur störf umsækjenda til stiga, skv. VII. kafla matsreglna kjaranefndar frá 19. desember 2002, að fengnu áliti ráðgjafa.
5. gr.
Kjaranefnd úthlutar greiðslum úr sjóðnum 1. september ár hvert. Prófessor getur fengið greitt úr sjóðnum á árinu eftir að hann fer á eftirlaun vegna rannsókna sem unnar eru á því ári sem hann lætur af störfum.
6. gr.
Sjóðnum er skipt milli prófessora í hlutfalli við fjölda rannsóknastiga ár hvert. Ekki er þó tekið tillit til stiga fyrir tilvitnanir. Við úthlutun dragast tíu stig frá rannsónastigum miðað við að rannóknaskylda sé 40% af vinnuskyldu. Sé hlutfall rannsóknaskyldu annað breytist lágmarksstigafjöldi hlutfallslega.
7. gr.
Séu rannsóknastig umfram lágmarksstigafjölda fleiri en 60 reiknast þau stig sem umfram eru í veldinu 0,8. Sjóðnum er úthlutað í hlutfalli við umreiknuð rannsóknastig.
Samþykkt á fundi kjaranefndar 9. desember 2003
Guðrún Zoëga
Ásgeir Magnússon
Þorsteinn Haraldsson