Nauðsynlegt er að senda öll fylgigögn með umsókn til þess að auðvelda yfirferð og afgreiðslu þeirra. Skönnuðum skjölum skal hlaða upp hér að neðan.
Viðbótargögn má senda á netfangið fpr@hi.is - 
Nánari upplýsingar um reglur sjóðsins hér.
Einnig má hafa samband við Lilju Þorgeirsdóttur, framkvæmdastjóra sjóðsins á netfanginu, liljathorgeirs@hi.is, eða í síma, 525-5415.

Vinsamlegast sendið með umsókn sundurliðun á útlögðum kostnaði sem sótt er um styrk fyrir.
Ef sundurliðun er margliðuð er æskilegt að senda hana í Excel töflu

Fylgigögn með umsókn:
Farseðlar og brottfararspjöld ef sótt er um styrk vegna flugkostnaðar.
- Reikningar vegna útlagðs kostnaðar (flug- og gistikostnaður, ráðstefnugjöld, ferðir til og frá flugvelli o.fl.).
Þegar reikningar eru í erlendri mynt er æskilegt að senda með skjáskot úr banka. Ef það fylgir ekki með er tekið mið af gengi Landsbankans á greiðsludegi.

- Staðfesting á þátttöku ásamt dagskrá.
- Athugið að styrkir eru aðeins veittir að ferð lokinni. Styrkumsókn skal berast sjóðnum innan árs frá lokum verkefnis.

Stjörnumerkta reiti verður að fylla út.
Skilyrði þess að umsókn verði tekin til meðferðar er að fullnægjandi fylgigögn hafi borist. Fylgigögnum er hlaðið upp á næstu síðu.