Ársskýrsla FPR

Skýrsla stjórnar Félags prófessora við ríkisháskóla vegna starfsársins 2011-2012 var lögð fram á aðalfundi félagsins þann 9. maí sl. Í skýrslunni er fjallað um það helsta í starfsemi FPR á liðnu ári. Sjá nánar um starfsemi ársins hér.

Ályktun frá ársfundi norrænna háskólakennara

Félag prófessora við ríkisháskóla heldur árlegan fund með systurfélögum á Norðurlöndum. Fundurinn í ár var haldinn í apríl í Noregi. Alls mættu 30 fulltrúar félaga háskólakennara og prófessora frá öllum Norðurlöndum. Á þessum árlegu fundunum er skipst á upplýsingum og sameiginleg hagsmunamál rædd. Undir lok fundarins í ár var samþykkt ályktun þar sem þess er krafist af ríkisstjórnum og háskólayfirvöldum á Norðurlöndum að akademískt frelsi sé virt og stuðlað að fjölbreyttum rannsóknum og kennslu í háskólum Norðurlanda. Hér má nálgast ályktunina.

Ársreikningur 2011

Aðalfundur Félags prófessora við ríkisháskóla var haldinn 9. maí sl. Á aðalfundinum var lagður fram ársreikningur félagsins. Ársreikninginn má sjá hér.

Aðalfundur FPR 9. maí 2012

Aðalfundur Félags prófessora við ríkisháskóla verður haldinn miðvikudaginn 9. maí nk. kl. 15.00.

Fundurinn verður í Námu, húsnæði Endurmenntunar Háskóla Íslands, Dunhaga 7, Reykjavík. Fjarfundarbúnaður verður í Háskólanum á Akureyri.

Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi samkvæmt 4. gr. laga félagsins:
1. Lögð fram ársskýrsla stjórnar.
2. Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar.
3. Tillögur um lagabreytingar, ef fram koma.
4. Ákveðið félagsgjald og samningaréttargjald, sbr. 6. og 10. gr.
5. Stjórnarkjör, sbr. 8. gr.
6. Kosið í samninganefnd, sbr. 10. gr.
7. Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga.
8. Önnur mál.

Lög félagsins má nálgast hér: Lög Félags prófessora

Orlofssjóður BHM - sumarúthlutun 2012

Sunnudaginn 1. apríl nk. (kl. 24) rennur út fresturinn til að sækja um sumarhúsin sem í boði eru innanlands í sumar fyrir tímabilið frá 15. júní til og með 24. ágúst.

Umsóknir eru sendar inn með rafrænum hætti á Bókunarvefnum. Umsóknarformið er á bókunarvefnum undir "umsóknir og úthlutanir". Þar eru einnig leiðbeiningar um það hvernig sótt er um.

Niðurstöður ættu að liggja fyrir 3. apríl og verða sendar í tölvupósti á það netfang sem sett er í netfangareitinn við innskráninguna inn á bókunarvefinn.

Lýsingar á því sem í boði er á vegum sjóðsins í sumar er hægt að skoða í Orlofsblaðinu 2012.


Syndicate content